Skór

Frá stofnun Suitup Reykjavik árið 2014 höfum við lagt mikla áherslu á að bjóða upp á vandaða skó sem passa fullkomlega við jakkafötin okkar. Í dag framleiðum við okkar eigin skólínu í samstarfi við spænskan framleiðandi. Frá árinu 1925 hafa þeir framleitt skó í smábænum Almansa eftir svokallaðri Goodyear aðferð sem tryggir bæði góða endingu og hámarks þægindi. 

Nýlega bættum við svo við okkar eigin línu af strigaskóm sem framleiddir eru í Portúgal. Til þess notum við eingöngu ítölsk hráefni og fást skórnir eins og stendur í 3 litum.