Jakkar

Frá árinu 2014 höfum við sérhæft okkur í sérsaumi og á þeim tíma saumað jakkaföt á þúsundir einstaklinga. Nú höfum við tekið alla þá þekkingu sem við höfum safnað á þeim tíma og notað til að gefa út okkar fyrstu línu af tilbúnum jökkum. 

Tilbúnu jakkarnir okkar eru líkt og þeir sérsaumuðu framleiddir úr bestu mögulegu efnum. Má þar helst nefna Loro Piana, Vitale Barberis Canonico og Guabello sem allar eru staðsettar í Biella á Ítalíu.

Sniðið á jökkunum okkar er hinsvegar það sem gerir þá einstaka. Í gegnum árin höfum við tekið mál af þúsundum einstaklinga. Þær mælingar höfum við tekið og þróað út frá þeim nýtt jakkasnið. Niðurstaðan er vandaðir jakkar sem passa einstaklega vel. Við bjóðum auðvitað upp á að gera breytingar á jökkunum ef til þarf og getum gert þær samdægurs ef tíminn er naumur.