Sunset by Di Pray
Lanificio Di Pray hefur starfað frá árinu 1948 og er staðsett í Sandigliano á Biella svæðinu á N-Ítalíu. Sunset línan þeirra inniheldur 30 falleg efni úr blöndu af ull, höri og silki sem henta fullkomlega fyrir hlýrri mánuði ársins. Efnin eru einnig á frábæru verði og kosta sérsaumuð jakkaföt úr þessum efnum aðeins 159.995 kr.