Bindi

Það er fátt betra til að fullkomna útlitið en fallegt bindi. Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á breitt úrval binda og förum við reglulega til Ítalíu til að heimsækja silkimyllur þar sem við sérhönnum efnin í bindin okkar.

Ítölsku bindin okkar eru handsaumuð í suðurhluta Ítalíu af klæðskerum með áralanga reynslu.

Nýlega hófum við svo sölu á bindum frá Robert Keyte í Englandi. Þau eru framleidd sérstaklega fyrir okkur í Macclesfield og eru skemmtileg viðbót við úrvalið okkar.

Bindin hér að neðan eru fáanleg í verslun okkar á Bolholti 4 en þú getur einnig pantað í gegnum vefverslunina og fengið bindið sent heim að dyrum. Athugið að úrvalið í vefverslun er aðeins hluti af þeim bindum sem við eigum í verslun okkar.