Skoðaðu sumarlínuna af jakkafötum hér og stökum jökkum hér eða kíktu einfaldlega í heimsókn til okkar í Bolholt 4.
]]>Þegar við hófum framleiðslu á tilbúnum fatnaði vorið 2020 héldum við okkur við þá hugmyndafræði með það að markmiði að bjóða upp á vandaðan fatnað á betra verði en áður hefur þekkst á Íslandi.
En hvað er það sem gerir jakkafötin okkar að því sem þau eru?
]]>Þegar við hófum framleiðslu á tilbúnum fatnaði vorið 2020 héldum við okkur við þá hugmyndafræði með það að markmiði að bjóða upp á vandaðan fatnað á betra verði en áður hefur þekkst á Íslandi.
En hvað er það sem gerir jakkafötin okkar að því sem þau eru?
Frá árinu 2014 höfum við tekið mál af þúsundum viðskiptavina. Þau gögn höfum við notað til að þróa jakkafatasnið sem hentar okkar viðskiptavinum virkilega vel.
Meðal þess sem við höfum rekið okkur á í gegnum árin er að okkar viðskiptavinir eru oftar en ekki með sterkbyggða fætur. Því gerum við ráð fyrir örlítið meira plássi yfir lappir og mjaðmir en hefðbundin evrópsk buxnasnið.
Eins höfum við gert ráð fyrir meira plássi yfir brjóstkassann en margir kannast eflaust við það að máta jakka sem gapir og fellur illa yfir brjóstkassann.
Frá upphafi höfum við alltaf lagt kapp á að bjóða upp á heimsklassa efnin í öll okkar föt. Tilbúnu fötin okkar eiga það öll sameiginlegt að vera saumuð úr efnum frá mörgum elstu og virtustu efnamyllum Ítalíu og má þar nefna Vitale Barberis Canonico, Loro Piana og Guabello.
Oftar en ekki eru efnin sérstaklega ofin fyrir okkur og eru því hvergi fáanleg annarstaðar.
Í góðum jakkafötum skiptir einnig miklu máli að fötin séu saumuð á vandaðan hátt. Flest fjöldaframleidd jakkaföt í dag eru “fused” sem þýðir að innra byrði jakkans er úr gerviefni og er fest við jakkafataefnið með lími. Niðurstaðan er jakki sem andar illa, fellur illa að líkamanum og tapar lögun með tímanum.
Jakkafötin okkar eru hinsvegar framleidd með svokallaðri half-canvas aðferð. Það þýðir að í stað þess að nota innra lag úr gerviefnum notum við striga úr bómull og hesthári og jakkafataefnið er svo fest með saumum, ekki lími. Aðferð sem er bæði dýrari og tímafrekari en útkoman er svo sannarlega þess virði.
Auk þess sem að slíkur jakki andar betur þá fellur hann betur að líkamanum og hreyfist með honum. Jakkinn mótast einnig með líkamanum við notkun og kemur því til með að passa betur því meira sem þú notar hann.
Við kjósum að notast eingöngu við náttúrulega hnappa í öll okkar jakkaföt í stað hnappa úr plasti eða öðrum gerviefnum.
Þar má helst nefna hnappa úr horni en þeir eru skornir úr hornum nautgripa, vísunda eða skyldra dýra. Þar sem þeir eru náttúrulegir og ólitaðir eru engir tveir hnappar eins.
Hinn möguleikinn eru svokallaðir corozo hnappar. Þeir eru skornir úr fræjum tagua pálmatrésins. Fræin eru ljós á lit en hnapparnir eru svo litaðir - oftar en ekki í ýmsum brúnum tónum.
Við trúum að smáatriðin skipti máli og séu það sem aðskilur frábær föt frá góðum fötum. Sum smáatriði jakkafatana okkar eru gagnleg og bæta endingu og frammistöðu fatanna en önnur eru meira hugsuð upp á útlitið og stílinn.
Nokkur þeirra má sjá hér að neðan en fyrst og fremst hvetjum við þig til að heimsækja okkur í Bolholt 4 og kynna þér vörurnar okkar í eigin persónu.
Zegna Baruffa á rætur sínar að rekja til ársins 1850 og er staðsett í Borgosesia, 100 km norðvestur af Mílanó. Svæðið þar í kring heitir Biella og er miðstöð ullariðnaðarins á Ítalíu og hefur verið í tæp 400 ár.
Framleiðsluferlið byrjar á því að velja rétta hráefnið. Þræðir merino ullarinnar sem notaðir eru mælast aðeins 19.5 míkrón (míkrón er 1/1.000.000 af metra).
Framleiðsluaðferðin skiptir svo ekki síður minna máli en hráefnið. Cashwool garnið er loftspunnið (e. air spun) sem í stuttu máli þýðir að það er fullt af lofti. Garnið frá Zegna Baruffa vegur þar af leiðandi meira en helmingi minna en annað sambærilegt garn.
Útkoman er því léttar, hlýjar og þægilegar peysur sem eru skyldueign í alla fataskápa. Þær henta einstaklega vel fyrir íslenskt veðurfar og má nota allt árið um kring.
Úrvalið af peysunum okkar má skoða hér en við mælum einnig með því að heimsækja okkur í Bolholt 4 til að upplifa þær í persónu - sjón er sögu ríkari.
]]>
Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjóri og tónsmiður, er einn eftirtektarverðasti listamaður þjóðarinnar. Hann og Sinfóníuhljómsveit Íslands voru nýlega tilnefnd til Grammy verðlauna fyrir plötuna Concurrence. Í tilefni þess voru haldnir sérstakir tónleikar þar sem fiðlukonsert Daníels var frumfluttur á Íslandi. Fötin sem hann klæddist á tónleikunum voru hönnuð í samstarfi við Suitup Reykjavik, sérstaklega með hlutverk hans sem hljómsveitarstjóri í huga.
Fyrsta skrefið var að velja fallega, svarta ull/mohair blöndu með twill áferð. Svarti liturinn er hefðbundna valið í klassískri tónlist en við vildum að fötin myndu samtímis vísa í fortíð og framtíð klassískrar tónlistar. Efnið er 260 gr/m og því frekar létt, en auk einkennandi gljáa mohair er efnið stífara en ull og heldur formi því mjög vel. Mohair og ull/mohair blöndur eru einmitt fyrir þessar sakir vinsæl efni í smóking fötum. Létt þyngd og öndun mohair eru líka einstaklega hentugir kostir undir sterkum sviðsljósum.
Snið fatanna er minimalískt og fágað. Aðeins ein tala er framan á jakkanum og engir flipar á skáskornu hliðarvösunum. Boðungarnir eru spíssaðir til að veita jakkanum ögn meira prýði og axlirnar eru mjúkar til að auðvelda hreyfingar hljómsveitarstjórans. Fötin sjálf eru aðsniðin, en þó skorin þannig að þau falla auðveldlega aftur á réttan stað þrátt fyrir miklar teygjur og handahreyfingar.
]]>
Það er með miklu stolti sem við kynnum nýja haust- og vetrarlínu Suitup Reykjavik. Síðastliðin 6 ár höfum við aðstoðað okkar viðskiptavini við að finna hina fullkomnu sérsaumuðu flík og síðan í maí á þessu ári að finna hina fullkomnu tilbúnu flík einnig.
Í þessu blaði ætlum við að stikla á stóru og fara yfir okkar vinsælustu vöruflokka og hvað er gott að hafa í huga við val á sérsaumuðum eða tilbúnum jakkafötum.
Í nýrri verslun okkar í Bolholti 4 höfum við komið upp frábæru úrvali af tilbúnum fatnaði - allt frá jakkafötum og stökum jökkum yfir í frábæra spænska skó en bróðurpartinn af okkar vörum framleiðum við undir eigin merki. Það gerum við til að tryggja gæði og rekjanleika en einnig til að bjóða viðskiptavinum okkar upp á hágæða fatnað á góðu verði.
Við vonum að þú njótir þessa litla blaðs okkar og hlökkum til að taka á móti þér í nýrri og glæsilegri verslun okkar að Bolholti 4. Hvort sem það er í kaffibolla og spjall eða til að skoða úrvalið.
]]>Þú getur séð úrvalið okkar af sokkum í versluninni okkar að Bolholti 4, en línan er líka væntanleg í vefverslun. Sokkarnir eru framleiddir í Lecce á Ítalíu og kosta 2.495 krónur parið.
]]>Heildarútlit jakkafata ráðast að miklu leyti af tvennu; efninu og saumaskapnum. Auk þess að bjóða upp á úrval af efnum frá virtustu myllum í heimi bjóðum við úrval af vönduðum saumaðferðum. Einn stærsti þátturinn í gerð jakka er hvernig jakkinn er „byggður“ (e. constructed).
Hingað til höfum við boðið upp á tvo möguleika í þeim efnum. „Unconstructed“ jakki er eins léttur og hægt er og ekki með neina púða í öxlunum. Jakkinn hefur mýkra útlit fyrir vikið og þessi stíll á rætur sínar að rekja til klæðskerahefð Ítalíu, þar sem áhersla er lögð á þægindi og að hafa jakkann léttan. Fyrir hefðbundnara útlit höfum við boðið upp á það sem kallast „half-canvas“ byggingu en þá er strigi úr náttúrulegum efnum saumaður með hrosshárum inn í boðungana og yfir brjóstkassan. Fyrir vikið rúlla boðungarnir fallega og striginn bregst við líkamshita og hreyfingu til að aðlagast líkama eigandans og verða jafnvel fallegri með notkun. Í ódýrari jökkum er efnið oftast límt saman. Þetta hefur ýmsa ókosti í för með sér, helst þá að fötin verða ekki jafn falleg og duga ekki jafn vel. Sú aðferð hefur því aldrei höfðað til okkar, þar sem við leggjum metnað í að hafa gæði fatanna eins mikil og völ er á.
Með það fyrir augum erum við ánægðir að kynna nýjan valkost varðandi jakkabyggingu. Héðan í frá munu kúnnar geta valið um að hafa jakkana sína saumaða með "full-canvas" aðferð þar sem striginn nær alla leið niður að faldinum á jakkanum. Sú aðferð er notuð af fremstu jakkafataframleiðendum og klæðskerum heims. Þægindin eru töluverð og endingin með bestu móti.
]]>
Japan framleiðir einungis um 1% af gallaefni í heiminim. Af hverju er þetta fágæta klæði svona dáð og eftirsótt af aðdáaendum?
Í stuttu máli er svarið að bestu japönsku gallefnismyllurnar varðveita hefðbundnar aðferðir þar sem áhersla er lögð á að fullkomna smáatriðin.
Við vinnum með nokkrar bestu gallaefnismyllur í heimi en ein af þeim áhugaverðustu er Kuroki. Stofnuð árið 1950, myllan er helst áhugaverð af fjórum ástæðum: