Lookbook - Haust/Vetur '25
Skoðavinsælustu vöruflokkarnir
gefðu sérsaumaða jólagjöf
24.995 kr
Skyrtugjafabréf
Vinsælasta gjöfin okkar! Gjafabréf fyrir sérsniðinni skyrtu í verðflokki A að eigin vali. Í þeim flokki eru yfir 200 efni - bæði í spariskyrtur sem og í hversdagslegri skyrtur.
Handhafi gjafabréfsins bókar svo tíma í mælingu hjá okkur þar sem hann velur efni í skyrtuna og öll smáatriði eins og hnappa, kraga og fleira. Skyrtan er svo sérsniðin á hann, nákvæmlega eins og hún á að vera.
Brúðkaup
Frá stofnun Suitup Reykjavik árið 2014 höfum við hjálpað þúsundum viðskiptavina við að líta sem best út á stóra deginum. Það stefnir í að sumarið 2025 verði það stærsta hingað til og hlökkum við mikið til að taka á móti verðandi brúðhjónum.
Afgreiðslutíminn okkar er 4 vikur en við mælum alltaf með að koma í mælingu með minnst 6-8 vikna fyrirvara þegar um brúðkaup ræðir. Við hvetjum alla sem eru í brúðkaupshugleiðingum til að heimsækja verslun okkar í Bolholti 4 og kynna sér þjónustu okkar. Eins mælum við með brúðkaupsblaðinu okkar þar sem við förum yfir það helsta sem þarf að hafa í huga við val á brúðkaupsfötum.